Hönk vikunnar! Það var ljóst strax frá fyrsta degi að þessi súper hönk yrði fyrir valinu og fær hans fríða andlit nú að prýða þetta síðutetur í heila viku. Það er frekar skrítið að Jónas hafi ekki fyrr hreppt þetta heiðurssæti hönka á Íslandi en hann hefur margt til brunns að bera. Í fyrsta lagi er hann nánast altalandi á tungumáli hönkanna, sem er franska og svo á hann digital myndavél. Hann er og valdamikill peningamaður og svo er hann líka alltaf að tantra köttinn sinn. Jonas ist ein Hunk!!!
Jónas er líka alltaf í stuði. Ingiböllur lemur kall!!! Ingiböllur er ekki allur þar sem hann er séður og þegar enginn sér til á hann það oft til að lemja kalla sem eru farnir að grána. Í þetta skipti var þó leyniljósmyndari minn Lord Paddington á staðnum og náði hann myndum af þessum ósköpum. Greyið fyrir árásina, grunlaust um örlög sín. Snögg og miskunnarlaus árás Ingibölls. Lord Paddington í góðum felum. Hér er aðeins augnablik liðið frá árásinni en Ingiböllur er strax hlaupinn á brott eins og smástelpa. Hönk vikunnar! Flestum aðdáendum fannst Bjarki vera mesti hönkinn sem í boði var og hefur hann því öðlast hinn geysivinsæla titil Hönk vikunnar. Bjarki er að eðlisfari mjög rólegur þrátt fyrir að gríðarsterkar tilfinningar brjótist um inni í honum. Hann er því maður mikilla andstæðna sem sést kannski greinilegast þegar myndin hér fyrir ofan er borin saman við myndina í Fólk að fá það.
Aftur vekur síðan athygli! Þessi síða mín er sífellt að vekja athygli í erlendum fjölmiðlum en greinina hér fyrir neðan fann ég í vefútgáfu fréttamiðilsins CNN.
This magnificent young Icelandic stallion (An adult male horse that has not been castrated, especially one kept for breeding) hasn´t let his final exam´s discourage him making his splendid website. Mr. Gudmundson´s site has got alot of attention in his native country which is known for the highest internet usage in the world. Therefore this is a marvelous achievement. He´s like the sun during the Icelandic summers. He never stops shining. Sir MacHumphrey, the very famous British sexadviser, has helped Mr. Gudmundson answering all the filthy questions which his fans are constantly asking him. Still, this handsome hunk remains calm despite his success. Can the extreme power of the Icelandic nature be harnessed? Are there more computer geniuses in the volcanic mountain Hekla? I doubt it. Mr Gudmundsson is one of a kind. Lord Paddington
Hönk vikunnar! Hún var virkilega hörð baráttan um hver ætti að vera hönk þessarar viku og bar Haukur naumlega sigur úr býtum. Ingibjörn hefði aðeins þurft að kjósa sjálfan sig 4 sinnum í viðbót og þá hefði hann öðlast þann heiður að vera hönk vikunnar. Haukur er hinsvegar sigurvegarinn og prýðir því hið fríða andlit hans síðuna mína að sinni. Haukur er enginn meðalmaður og þá sérstaklega ekki ef meðalmennskan væri mæld í mæleiningunni Hönk. Ég renndi myndinni af honum í gegnum Hönkmælinn hennar mömmu og reyndist hún vera 5,4 Mega Hönk.
Hönk vikunnar!!! Bergþór var kosinn með yfirgnæfandi meirihluta hönk þessarar viku. Samt er hann ekki jafn mikið hönk og ég. Margir hafa komið máli að við mig og spurt mighvort þetta hafi verið ekki bara hrein kosningasvik. Eitt þó er víst. Bergþór er svo sannarlega vinsælli en Ingi og Brynjar.
Síðan vekur athygli erlendis! Nýlega birtist í vefútgáfu The New York Times grein þar sem fjallað var um þessa síðu á mjög jákvæðan hátt. Hér fyrir neðan er stuttu úrdráttur úr greininni In the depths of the volcanic island Iceland a young man has used the power of Gullfoss and Geyser to create a unique website wich has captured the hearts of his fellow Icelanders. Mr. Gudmundsson, until now, an unknown man is described by thoose who know him to be very charming and lovely. Everyone but a filthy fellow named Vidar is welcome but he is described to be a very vulgar, arrogant and a cocky man. This lovely new website is like a warm fire for the Icelanders in the cold north. Sir Anthony MacHumphry
Óttinn grípur um sig!
Í gær leitaði jöfur heimasíðnanna til mín með tár í augum og bað mig um að auglýsa síðuna sína hér. Það er enginn annar en Ágúst Flygenring, stjórnandi hinnar geysivinsælu síðu semsagt.net. Hann hefur fundið fyrir minnkandi áhuga á síðunni sinni síðan þessi opnaði og leitaði því til mín. Ég tek öllum með opnum örmum en það kostar fimmþúsund kall. Honum hefur nú verið bætt á skuldalistann hér fyrir neðan. Síðuna hans finnið þið þarna uppi, í uppáhaldslinkum.
Varðandi sóðalegt innlegg Brynjars í gestabókina.
Fyrst þér finnst síðan mín svona ömurleg, af hverju merktirðu þá við já þegar spurt var hvort síðan væri æðisleg í gestabókinni? Fólk verður að vera samkvæmt sjálfu sér. Þú færð einn séns enn og svo bannfæri ég þig!
|